Fyrirtækið

Saga

Upphafið að fyrirtækinu Bergvík var árið 1981, en þá stofnaði Ólafur Guðmundsson og Ingibergur G. Þorvaldsson 4 myndbandaleigur á Reykjavíkursvæðinu sem nefndust Video-Sport. Fyrirtækið var fljótt að stækka við sig og fyrsta myndin sem Bergvík gefur út er Nick Knatton. Bergvík festir kaup á fjölföldunartækjum og síðan tækjabúnaði til að gera VHS mastera á árunum 1984 til 1986. Félagið verður líka fyrsta fyrirtækið í Evrópu til að gera samning við Macrovision um leyfi til að fjölfalda myndir með “Anti-Copy” kerfinu.

Í gegnum tíðina hefur Bergvík haft umboð til útgáfu kvikmynda á Íslandi frá mörgum þekktum fyrirtækjum, svo sem; BBC, Walt Disney, Touchstone, Buenavista, National Geographic og fleiri. Árið 2002 fjárfestir fyrirtækið í fullkomnum búnaði til framleiðslu og fjölföldunar á DVD diskum. Síðan þá hefur Bergvík aflað sér mikilvægrar þekkingar á vinnslu með stafrænt myndefni og, ásamt útgáfu á kvikmyndum, heimildamyndum og barnaefni, hefur sérhæft sig á því sviði.

Útgáfa

Bergvík hefur sérstöðu í útgáfu á sígildu barnaefni, kvikmyndum, fræðsluefni og íslenskum kvikmyndum. Við höfum upp á að bjóða mörg hundruð titla.

Þjónusta

Fyrirtækið sérhæfir sig einnig í vinnslu, hönnun, samsetningu, yfirfærslu og fjölföldun á bæði mynd- og hljóðefni. Við höfum reynslu, þekkingu og tækjabúnað til að vinna með allt frá gömlum 8mm og 16mm filmum, skyggnum (eða slides eins og það er oftast kallað), vinyl plötum og kassettum til VHS, miniDV, DVD, CD og flest stafræn og tölvutæk form. Það má segja ef að þú ert með eitthvað til að horfa eða hlusta á, þá getum við fært það af einu formi yfir á annað.

Verslun

Í verslun okkar að Nethyl 2D bjóðum við uppá mikið úrval af DVD diskum. Þar erum við bæði með eigið útgefið efni sem og titla frá öðrum. Hjá okkur er hægt að fá mikið af fræðsluefni og flestar íslenskar kvikmyndir sem komið hafa út á DVD. Við erum einnig með mikið af erlendum kvikmyndum og fjöldan allan af barnaefni.