portfiller

Yfirfærsla myndefnis

Við tökum við myndböndum á hvaða formi sem er og færum yfir á DVD eða harðan disk. Hvort sem það er 8 eða 16mm filmur, VHS, hi-8, BetaMax, MiniDV eða DVD þá getum við fært það af einu formi yfir á annað.

Yfirfærsla myndbanda á DVD
Við tökum t.d. við VHS, VHS-C, S-VHS, BetaMax, Hi-8, Digital 8 og MiniDV myndböndum.

Fæstir vita að myndbönd byrja að skemmast strax við notkun og geta jafnvel alveg eyðilagst á tíu árum. Með því að koma gömlu myndefni á stafrænt form er verið að sjá til þess að það geymist sem lengst og að sem flestir geta notið minninganna.

Yfirfærsla filmu á DVD
Við tökum við 8mm, Super 8mm og 16mm filmum.

Kvikmyndafilmur brotna, hnökrar koma í ljós, þær flökta og með tímanum dofnar myndin. Viðgerð á filmunni án búnaðar fagmanna er næstum ógerleg svo að vel sé. Það er erfitt að setja filmuna á sýningarvélina og hún flækist auðveldlega. Við erum með sérhönnuð tæki og þróaða vinnsluaðferð til að ná sem bestum gæðum í yfirfærslunni.

Yfirfærsla stafræns efnis á DVD
Við tökum einnig við myndefni á stafrænu formi. Má þar telja t.d. MPEG2, MPEG 1, AVI, Quicktime, wmv.

Skil á verkefni
Við setjum síðan myndefnið á DVD diska, miniDV stafræna spólu og/eða sem Digital Video .avi (dv-avi) skrár á harðan disk. Sé þess óskað er hægt að vinna myndefnið, klippa það til og bæta við grafík eða gera DVD-valmynd.