Klaufabárðarnir diskur 1-3

Vörur > Óflokkað > Klaufabárðarnir diskur 1-3

Nú eru Klaufabárðarnir komnir út á Íslandi – alls þrír dvd diskar með 35 þáttum. Safnaðu þeim öllum! Ný sería með diskum 4, 5, 6 er væntanleg í Ágúst!

Hvað eru Klaufabárðarnir?

Klaufabárðarnir eru bráðfyndnir brúðuþættir sem voru framleiddir í gömlu Tékkóslóvakíu á árunum 1979-1990. Þeir njóta vinsælda um allan heim og voru sýndir á RÚV á níunda áratugnum. Nú, rúmlega þrjátíu árum eftir að framleiðsla, hófst eiga þessir ljúfu kallar ennþá erindi inná heimili landsins. Söguhetjurnar – hinir seinheppnu nágrannar – komu í raun fyrst fram á sjónarsviðið sem aðalsöguhetjur brúðumyndarinnar “The Tinkers” sem sýnd var í tékkneska ríkissjónvarpinu árið 1976. Þremur árum síðar hófu svo göngu sína þættirnir “A je to”” eða “Hana nú!” sem eru þættirnir um Klaufabárðana sem nú eru komnir á dvd á Íslandi.

Hvað er svona skemmtilegt við Klaufabárðana?

Klaufabárðarnir hafa sérstakt lag á að koma sér í klandur. Þeir eru ekki sérlega handlagnir en þó með eindæmum hugvitssamir þegar leysa á aðkallandi vandamál á heimilinu eins og að koma þvottavél upp á þriðju hæð eða fela stóran blett í stofuteppinu. Jákvæðnin sem einkennir söguhetjurnar höfðar jafnt til barna nútímans og þeirra sem voru börn þegar þættirnir voru sýndir á RÚV í den.

Hvaða aldurshóp hentar þetta barnaefni?

Börn og fullorðnir virðast hafa jafngaman að Klaufabárðunum. Í þáttunum er ekkert ofbeldi, enginn hávaði og engin neikvæðni. Þeir yngstu í fjölskyldunni geta notið þáttanna því þar er ekkert talað heldur sér tónlistin um að túlka stemminguna. Þættirnir voru reyndar hugsaðir í upphafi sem grínþættir fyrir fullorðna í tékkóslóvakíska ríkissjónvarpinu en reyndust höfða til allrar fjölskyldunnar. Segja má að Klaufabárðarnir hafi “óvart” orðið að barnaefni.

Af hverju er annar þeirra stundum í grárri og stundum í rauðri peysu?

Á mynddiskunum þremur eru 35 þættir, þar af voru 28 framleiddir á árunum 1979-1985. Sjö þættir skera sig úr, en þeir voru framleiddir á 1989-1990. Í þessum “nýju” þáttum (sem eru á disk 3) eru Klaufabárðarnir fluttir út blokk í einbýli og tæknileg áferð þáttanna er önnur. En glöggir áhorfendur taka líka eftir því að annar þeirra félaga hefur skipt gráu rúllukragapeysunni út fyrir rauða. Upprunalega áttu Klaufabárðarnir að vera í gulri og rauðri peysu. Þar sem ritskoðun var við lýði í gömlu Tékkóslóvakíu var því breytt þar sem einhverjir töldu víst að með litavalinu væri verið að vísa í samskipti stórveldanna Kína (gult) og Rússlands (rautt). Á árum Flauelsbyltingarinnar (1989-1990) og mikilla þjóðfélagsbreytinga í gömlu Tékkóslóvakíu þótti hins vegar við hæfi að draga fram rauðu peysuna og láta alla ritskoðun sem vind um eyru þjóta.



Klaufabárðarnir eru sígilt meistaraverk.
Hreinræktuð skemmtilegheit frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu.

-Davíð Þór Jónsson grínisti.


“Klassísk snilld.”
-Jón Gnarr grínisti og borgarstjóri.